Jaeja, thá erum vid komnar til La Paz. Thetta er mjög
skemmtileg borg, ekki svosum mikid ad sjá en theim mun meira líf á
götunni. Splaestum á okkur 3 stjörnu hóteli, af thví erum búnar ad
vera svo duglegar ad spara alla ferdina...og af thví ad vid erum
búnar ad hristast í bíl og gista á vafasömum hostelum sídustu 2
vikurnar eda svo.
Erum bara búnar ad taka thví rólega sídan vid komum
hingad. Aetludum ad internetast í gaerdag og vorum langt komnar med
myndainnsetningu thegar allt vard bara svart! Rafmagnid fór af
öllum midbaenum í meira en 4 tíma! Mjög skemmtilegt. En vid héldum
ótraudar áfram thegar rafmagnid kom á og ávöxtur thess eru ca. 200
nýjar myndir handa ykkur
. Alltaf erum vid ad hugsa um fólkid
heima.
Jeppaferdin frá San Pedro de Atacama var alveg frábaer!
Reyndar thurftum vid ad ýta jeppanum í gang nokkud oft og vegirnir
höfdu ekki verid lagadir sídan their voru ruddir fyrir ca. hálfri
öld, en thad var bara gaman. Vid sáum ýmislegt; Fjöll, vötn, hveri,
flamingóa, fjöll, vötn, laugar ofl, en hápunkturinn var án efa
Salar de Uyuni, staersta og haesta saltslétta í heimi. 12000 ferkm
af hvítri eydimörk, sums stadar med pollum sem minntu á thad ad
einu sinni var thetta risastórt stöduvatn. Vid vöknudum í dögun og
horfdum á sólina koma upp yfir sléttunni, sem var hreinlega mögnud
sjón.

Ferdafélagarnir voru heldur ekki af verri endanum. Vid
vorum 12 í hóp, og skipt nidur á tvo jeppa. Med okkur í jeppa voru
Jacqueline og Connor, skoskt par og miklir addáendur íslenskrar
kvikmyndagerdar og Halldórs Laxness. Vid komumst ad thví ad
sýningar á íslenskum myndum eru reglulegur vidburdur í
kvikmyndahúsum Edinborgar. Auk theirra vorum vid med enskum
systkinum í bíl, Chris og Lucie. Vid vorum alltaf ad upplýsa Chris
um ýmislegt sem hann hafdi ekki vitad ádur, t.d. hve stórt
Stóra-Bretland er, sem hann hafdi ekki hugmynd um..

Í hinum bílnum voru svo thrjár saenskar vinkonur, Maria, Sara og
Sandra, sem vid hittum reyndar líka í Puerto Madryn, svona er
heimurinn lítill. Auk theirra voru Omar og Rosa, par frá
Chile og Francois frá Kanada.
Í gaerdag vildi svo skemmtilega til ad vid rákumst á
saensku stelpurnar hérna í La Paz og var bodid í partý til theirra
um kvöldid, ásamt Chriis og Lucie sem gistu á sama hóteli. Vid
röltum thangad galvaskar (sem er haegara sagt en gert upp brekku í
4000 m haed) med flösku af gómsaetu bólivísku raudvíni (200 kr).
Eftir spjall og fleira var ferdinni heitid á Hard Rock Café sem er
heitasti stadurinn í La Paz um thessar mundir. Thar fengum vid
algeran óverdós af The Offspring og eitís póverballads svo vid
ákvádum ad fara á annan stad, sem heitir thví skemmtilega nafni
Traffic. Ég hef aldreir komid inn á nafna hand í Keflavík, en get
ímyndad mér ad their séu ekki óskyldir, taktföst teknótónlist og
allir rosa fullir. Vid erum ekki miklir addáendur thess og fórum
thví bara heim á hótel, eftir hjartnaemar kvedjur vid Uyuni vini
okkar.
Í morgun var svo sofid út, vaknad klukkan 10.15 til ad fá
sér gómsaetan morgunmat, og svo aftur uppí rúm til ad horfa á
Oceans 12, mjög slakandi J.
Naest er svo ferdinni heitid til Copacabana, sem er vid
Lago Titicaca. Thadan förum vid svo til Cuzco í Perú og skodum
Machu Picchu ofl.
Thangad til naest.
P.s. Fyrir addáendur áfengis thá er bjórinn í Bólivíu sá
besti sem vid höfum smakkad hingad til. Raudvínid stenst líka thví
argentínska og chíleska vel snúning.
...og já, thad tharf vaentanlega ekki ad taka thad fram en
thad eru komnar nýjar
myndir
pps. Vid viljum líka hvetja fólk til ad kvitta fyrir sig, vid erum farnar ad halda ad enginn
lesi thetta lengur.